Í kvöld fáum við endanlega á hreint hvernig úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla verður skipuð þegar lokaumferð deildarinnar fer fram. Sex leikir eru á boðstólunum og hefjast þeir allir kl. 19:15.
Leikir kvöldsins:
Njarðvík-Tindastóll
Keflavík-Grindavík
Fjölnir-ÍR
KR-Snæfell
Hamar-Stjarnan
Haukar-KFÍ
Rúnar Birgir Gíslason, fréttastjóri Karfan.is, tíundaði á þriðjudag hvernig hlutirnir gætu þróast að lokinni umferð kvöldsins. Staðreyndirnar eru þær að Snæfell er deildarmeistari, Hamar og KFÍ eru fallin í 1. deild, Tindastóll kemst ekki úrslitakeppnina, Fjölnir og Haukar berjast um eitt laust sæti í úrslitakeppninni en liðin sem nú eru í 1.-7. sæti í deildinni eru örugg með sitt sæti en það ræðst í kvöld hvernig lokaröðunin verður.
Það er því í mörg horn að líta í kvöld, fjölmennum á völlinn!





