Bakvörðurinn Craig Schoen skrifaði í morgun undir nýjan samning við KFÍ og mun því leika með liðinu í 1. deild karla á næstu leiktíð. Schoen sem einnig er fyrirliði KFÍ hefur verið einn sterkasti leikmaður liðsins undanfarin ár. Frá þessu er greint á www.kfi.is
Næsta leiktíð verður sú fjórða í röðinni hjá Craig í KFÍ búning og segja Ísfirðingar á heimasíðu sinni í dag að undirbúningur fyrir næstu leiktíð sé þegar hainn og að nánari frétta af liðinu megi vænta á allra næstu dögum.
Mynd/ Tomasz: Craig í leik með KFÍ gegn KR fyrr á þessari leiktíð.





