KV mátti þola þungt heimatap gegn liði Breiðabliks á Meistaravöllum í kvöld þegar liðin mættust í 5. umferð 1. deildar karla, 77–115. Vesturbæingar lentu undir snemma leiks og áttu í miklu basli með öflugan sóknarleik gestanna í teignum allan leikinn, en munurinn jókst jafnt og þétt allt til leiksloka. Eftir tapið situr KV áfram með fjögur stig í deildinni.
Rætt var við Fal Harðarson, þjálfara KV, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.





