HomeNeðri deildir1. deild karlaÍA jafnaði Hauka á toppnum – Stórsigur á Selfossi

ÍA jafnaði Hauka á toppnum – Stórsigur á Selfossi

Fimm leikjum er lokið í kvöld í 1. deild karla og 1. deild kvenna þar sem boðið var upp á mikil tilþrif, örugga sigra sem og mikla spennu á lokametrunum.  

Í 1. deild karla hélt ÍA fullkomnu gengi sínu áfram með 99–80 sigri á Hamri á Akranesi og jafnaði þar með Hauka á toppi deildarinnar með 10 stig eftir fimm umferðir. Breiðablik fór á kostum í Vesturbænum og vann stórsigur á KV, 77–115, og lyfti sér í 6 stig. Í Garðabæ hafði KFG betur gegn Fjölni, 90–77, og jafnaði Þór Þorlákshöfn í 3.–4. sæti með 8 stig. Í botnslagnum í Borgarnesi sótti Snæfell dýrmætan fimm stiga útisigur gegn Skallagrím, 82–87, og náði í sín fyrstu stig á leiktíðinni á meðan Skallagrímur situr enn eftir á botninum án stiga.  

Í 1. deild kvenna fóru heimakonur á Selfossi hreinlega á kostum gegn ÍR og unnu 72 stiga burst, 109–37. Með sigrinum situr Selfoss eitt á toppi deildarinnar með 8 stig eftir fimm leiki.  

Úrslit kvöldsins

1. deild karla:

 ÍA 99 – 80 Hamar  

 KV 77 – 115 Breiðablik  

 Skallagrímur 82 – 87 Snæfell  

 KFG 90 – 77 Fjölnir  

1. deild kvenna:

 Selfoss 109 – 37 ÍR

Fréttir
- Auglýsing -