HomeBónus deildinBónus deild karlaHetjuleg barátta Ármanns ekki nóg í N1 höllinni

Hetjuleg barátta Ármanns ekki nóg í N1 höllinni

4. umferð Bónusdeildar karla lauk í kvöld með tveimur leikjum, annar þessara leikja var Reykjavíkurslagur þegar Ármenningar heimsóttu Valsmenn. Liðin hafa átt misjöfnu gengi að fagna, Valsmenn hafa unnið fyrstu þrjá leikina en Ármann tapað sínum. Það mátti því búast við sigri heimamanna, en það skyldi þó engin afskrifa Ármann.

Fyrstu mínúturnar leit út fyrir að Valur myndi kafsigla Ármann, virtust geta skorað þegar þeim sýndist, á meðan skotnýting gestanna var ekkert spes. En Ármann beit frá sér og náði að halda vel í Valsmenn. Það var ánægjulegt að sjá Ástþór aftur á gólfinu, eftir löng og erfið meiðsli.  Ármann náði að minnka forystu Vals í tvö stig, staðan eftir fyrsta leikhluta 23-21.

Það var sama barátta í öðrum leikhluta, kannski ekki áferðafallegasti körfuboltinn. Valsmenn áttu frekar auðvelt með að gera sínar körfur, en misstu oft boltann klaufalega.  Valsmenn leiddu en Árann aldrei langt undan og þótt þetta liti út fyrir að vera auðveldur leikur, þá var munurinn aldrei mikill. Það var ekki fyrr en í lok leikhlutans að Valur náði aðeins að slíta sig frá og leiddu 52-39 eftir tröllatroðslu Kristós á loka sekúndunni.

Leikurinn var í nokkru jafnvægi í upphafi seinni hálfleiks, engin flugeldasýning, meira svona iðnaðarkörfubolti.  Ármenningar sýndu töluvert betri leik en í fyrri hálfleik og með meiri ákefð en áður, það dugði til að minnka muninn það mikið að Finnur tók leikhlé. Ármann vann þennan leikhluta og munurinn aðeins fimm stig, Valsmönnum í vil, 70-65.

Miðað við þriðja leikhluta þá var ljóst að þetta var orðin leikur, Ármenningar komnir með blóð á tennurnar. Ingvi Þór henti í einn úr djúpinu og munurinn aðeins tvö stig. Ármann skorar næstu þrjú stig og skyndilega eru gestirnir komnir yfir.   Valsmenn vöknuðu þá loksins og náðu að komast aftur yfir. Það var samt allt annað að sjá sóknar- og varnarleik gestanna. Það var jafnt á öllum tölum.  Þetta var síðan algjör naglbítur á lokamínútunum þar sem Ármann fékk tækifæri á að jafna leikinn með flautuþristi, en niður fór hann ekki og Valsmenn hrósa happi og unnu leikinn 87-84. 

Hjá Val var Lautier lang atkæðamestur með 32 stig, Kristófer var með 16 stig og 8 fráköst.  Hjá Ármann var Kinyon með 25 stig, Johanson með 18 stig síðan átti Arnaldur fínan leik með 12 stig og 9 fráköst.

Valsmenn heimsækja Hornafjörð í næstu umferð, sá leikur verður 6. nóvember. Ármann aftur á móti fá Grindavík, þann 5. nóvember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -