HomeFréttirAdamshick valin best í umferðum 12-22

Adamshick valin best í umferðum 12-22

 
Jacquline Adamshick leikmaður Keflavíkur var áðan útnefnd besti leikmaður umferða 12-22 í Iceland Express deild kvenna. Þá var Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari Hamarskvenna valinn besti þjálfarinn.
Úrvalslið umferða 12-22
 
Kristrún Sigurjónsdóttir – Hamar
Margrét Kara Sturludóttir – KR
Bryndís Guðmundsdóttir – Keflavík
Jacquline Adamshick – Keflavík
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Haukar
 
Besti þjálfarinn:
Ágúst Sigurður Björgvinsson, Hamar (7 sigrar – 2 tapleikir)
 
Dugnaðarforkurinn:
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR
 
Undanúrslitin í Iceland Express deild kvenna hefjast svo á laugardag þar sem Hamar og Keflavík eru með heimaleikjaréttinn. Hamar tekur á móti Njarðvík í Hveragerði og Keflavík tekur á móti KR í Toyota-höllinni og hefjast báðir leikirnir kl. 16:00.
 
Mynd/ Úrvalsliðið ásamt Ágústi Björgvinssyni en Pálína Gunnlaugsdóttir tók við verðlaunum Bryndísar Guðmundsdóttur í dag. Með hópnum á myndinni eru Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ.
 
Fréttir
- Auglýsing -