Tveir leikir voru á dagskrá í NBA deildinni vestanhafs í nótt. Dallas Mavericks tóku á móti Minnesota Timberwolves og Utah Jazz á móti New Orleans Hornets. Dallas vann sinn 50 sigur á leiktíðinni gegn Kevin Love-lausum Úlfum en þetta er ellefta tímabilið í röð sem Mavericks vinna svo marga leiki.
Þá tapaði Utah Jazz sínum fjórða leik í röð gegn New Orleans en sigurinn var þó dýrkeyptur fyrir Hornets því einn þeirra besti maður, David West, meiddist alvarlega á hné og verður að öllum líkindum lengi frá keppni. Úrslitin má skoða betur hér að neðan
Dallas Mavericks-Minnesota Timberwolves (104-96, DAL: Nowitzki 30 stig, 11 fráköst. MIN: Anthony Randolph 31 stig).
Utah Jazz-New Orleans Hornets (117-121, UTA:Millsap 33 stig, 11 fráköst, Jefferson 22 stig, 13 fráköst. NOH: West 29 stig, Paul 24 stig, 12 stoðsendingar).
Elías Karl





