HomeFréttirLeikir dagsins: Þriðji slagur Keflavíkur og KR í kvöld

Leikir dagsins: Þriðji slagur Keflavíkur og KR í kvöld

 
Keflavík og KR mætast í sinni þriðju undanúrsitaviðureign í Iceland Express deild kvenna í kvöld og fer leikurinn fram kl. 19:15 í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ. Staðan í einvíginu er 1-1 þar sem liðin hafa unnið sinn hvorn heimaleikinn.
Keflavík vann fyrstu viðureignina á heimavelli en fyrir aðra viðureign liðsins var ljóst að Chazny Morris yrði ekki meira með KR svo Melissa Jeltema var fengin í vesturbæinn og fór mikinn í sigri KR sem þá jafnaði metin 1-1.

Þá má geta þess að Margrét Kara Sturludóttir verður í leikmannahópi KR í kvöld en hún missti af tveimur fyrstu viðureignum Keflavíkur og KR þar sem hún tók út leikbann.

 
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í þessari seríu kemst í úrslitaeinvígið þar sem verða annaðhvort Hamar eða Njarðvík en í gærkvöldi tók Hamar 2-1 forystu í því einvígi.
 
Keflavík-KR
Leikur 3 kl. 19:15 í Toyota-höllinni
Staðan í einvíginu 1-1
 
Fjölmennum á völlinn!
Fréttir
- Auglýsing -