HomeFréttirSagt eftir leik í Hólminum: Fannar, Teitur og Jón Ólafur

Sagt eftir leik í Hólminum: Fannar, Teitur og Jón Ólafur

 
 
Karfan.is ræddi við Stjörnumennina Fannar og Teit eftir frækinn sigur Garðbæinga í Hólminum sem og Jón Ólaf Jónsson leikmann Snæfells sem sagði að sóknarlega þyrftu Hólmarar að fá meira flæði og hætta að pirra sig á hlutunum.
Fannar Freyr Helgason, Stjörnunni:
 
,,Það var svo sannarlega mikilvægt að sigra hérna í kvöld og nú stálum við heimaréttinum af þeim. Það var það sem við ætluðum að gera en við þurfum að mæta þeim tilbúnari í næsta leik þar sem við vorum hálfslappir í byrjun. Þeir eru með eitt besta þriggja stiga skotliðið í deildinni á heimavelli og eru bara mjög öflugir en við vitum alveg hvernig á að spila á móti þeim og um leið og við förum aðeins að anda og átta okkur á þessu þá kom þetta betur hjá okkur. Við þurfum svo bara að mæta brjálaðir í næsta leik og þurfum að hætta að pæla í þeim og hugsa um hvað við getum og gerum best, hvernig við slógum út Grindavík sem er með hörkuvörn og smá geðveiki og þá vinnum við þetta."
 
Teitur Örlygsson, Stjörnunni:
 
“Serían er bara byrjuð og við byrjuðum alveg hreint skelfilega í leiknum og má segja að hann hafi bryrjað 15-0, menn voru ekki vakandi og spurnig hvort ferðalagið hafi eitthvað setið í mönnum. Við komum okkur svo rólega inní leikinn með frábærri vörn,ég veit ekki hvað við fengum mikið af galopnum þriggja stiga skotum sem við hittum ekki í dag og skelfilegt hvað við hittum illa en samt sem áður vinnum leikinn.Við þurfum í næsta leik að koma sterkari í byrjun og ekki gefa svona mikið forskot, svo vorum við í ferlegum villuvandræðum hér líka. En ef við mætum frá fyrstu mínútu, spilum með sjálfstraustið í 40 mínútur þá tökum við þetta.”
 
Jón Ólafur Jónsson "Nonni Mæju" Snæfelli
 
“Við verðum að vinna næsta leik ef við ætlum ekki að enda í tómri súpu. Mér fannst alveg þokkaleg barátta í okkur í leiknum en þó ekki undir lokin þar sem við misstum mörg sóknarfráköst til þeirra. Sóknarlega þurfum við að fá meira flæði og hætta að pirra okkur á smáhlutum. Við byrjðum vel og settum opnu skotin niður en svo hertu þeir á vörninni og þá hættum við að láta boltann ganga og fórum í einstaklingsframtak, einn á einn og svoleiðis hluti. Þá verður sóknarleikurinn tilviljnarkenndur hjá okkur og á móti komstast þeir vel inní leikinn.”
 
Viðtöl/ Símon B. Hjaltalín
Fréttir
- Auglýsing -