Arnór Daði Jónsson gerðist lukkulegur í gærkvöldi þegar hann setti niður Borgarskot Iceland Express á viðureign KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna. Á sama tíma var Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Keflavíkur og faðir Arnórs Daða að messa yfir sínum leikmönnum í leikhléi.
,,Ég spurði hann hvort hann hefði verið stressaður og hann sagði: Bara svona rétt aðeins með smá fiðring í fótunum áður en ég skaut og pabbi… hann snerti ekki einu sinni hringinn. Ekkert nema net!“ sagði Jón Halldór um vasklega framgöngu sonar síns við framkvæmd Borgarskotsins í gær.
Arnór Daði er 10 ára gamall og var handviss um að tilþrif sín hefðu kveikt í kvennaliði Keflavíkur sem síðar fór og sló út KR í undanúrslitum keppninnar.
Jón Halldór sagði að Arnór Daði væri mikill stuðningsmaður Arsenal í enska fótboltanum og því væri ekki loku fyrir það skotið að þeir feðgar myndu fara saman á nýjan og glæsilegan Emirates völlinn sem Arsenal tók í notkun fyrir ekki svo löngu.
,,Ég borga hótelið, það er nú bara sanngjarnt þar sem hann borgar flugið,“ sagði Jón Halldór eiturhress í samtali við Karfan.is





