HomeFréttirFimmta undanúrslitaeinvígið: Keflavík unnið þrisvar og KR einu sinni

Fimmta undanúrslitaeinvígið: Keflavík unnið þrisvar og KR einu sinni

 
Í kvöld hefst fimmta undanúrslitaeinvígi KR og Keflavíkur frá því að úrslitakeppnin í úrvalsdeild karla hóf göngu sína árið 1984. Keflvíkingar hafa vinninginn og hafa þrívegis árin 1991, 1992 og 1997 slegið KR út í undanúrslitum en KR sló Keflavík út úr undanúrslitum árið 2009 þegar þeir urðu einnig Íslandsmeistarar eftir oddaleik gegn Grindavík í úrslitum.
Undanúrslitarimmur KR og Keflavíkur
 
1991
Undanúrslit:
Keflavík 2-1 KR {71-84, 92-75, 86-80}
 
1992
Undanúrslit:
Keflavík 2-1 KR {80-75, 72-73, 87-73}
 
1997
Undanúrslit:
Keflavík 3-1 KR {93-77, 93-103, 113-59, 100-95}
 
2009
Undanúrslit:
KR 3-0 Keflavík {102-74, 88-75, 129-124 (88-88, 97-97, 108-108, 116-116)

Ljósmynd/ Jón Orri Kristjánsson og KR-ingar taka á móti Keflavík í kvöld kl. 19:15 í DHL-Höllinni þegar liðin opna undanúrslitaeinvígi sitt í Iceland Express deild karla.

Fréttir
- Auglýsing -