Staðan er 44-44 þegar blásið hefur verið til hálfleiks í fjórðu undanúrslitaviðureign Keflavíkur og KR í Iceland Express deild karla. Magnús Þór Gunnarsson og Thomas Sanders eru báðir komnir með 11 stig í liði Keflavíkur en Brynjar Þór Björnsson er kominn með 16 stig hjá KR og Marcus Walker 12.
Fyrri hálfleikur var nokkuð sveiflukenndur en jafn þó, skotnýting liðanna er svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir, Keflavík með 37% nýtingu í teignum og KR 20% í þriggja stiga skotum en þeirra fyrsti þristur í kvöld kom eftir 13 mínútna leik.
Nánar síðar…
Mynd/ Thomas Sanders sækir að körfu KR í Toyota-höllinni





