Keflvíkingar eru komnir með 2-0 forystu gegn Njarðvík í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar kvenna eftir 64-67 sigur í Ljónagryfjunni í kvöld. Keflvíkingar tóku á rás í öðrum leikhluta og héldu forystunni eftir það allt til leiksloka. Þriðja viðureign liðanna fer fram í Toyota-höllinni á föstudag þar sem Keflavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.
Bryndís Guðmundsdóttir gerði 24 stig í liði Keflavíkur í kvöld en það var Keflavíkurvörnin sem reyndist Njarðvíkingum um megn að þessu sinni. Hjá Njarðvíkingum var Shayla Fields með 25 stig.
Nánar síðar…





