HomeFréttirÆgir og Bergþóra best hjá Fjölni

Ægir og Bergþóra best hjá Fjölni

 
Körfuknattleiksdeild Fjölnis gerði upp árið á dögunum þar sem þau Ægir Þór Steinarsson og Bergþóra Holton voru valin bestu leikmenn meistaraflokka félagsins. Ægir stýrði Fjölnismönnum af röggsemi í vetur en liðið rétt missti af úrslitakeppninni og Bergþóra óx með hverjum leik í liði Fjölniskvenna en þó máttu gular sætta sig við fall í 1. deild kvenna á nýjan leik.
Besti leikmaðurinn hjá körlum : Ægir Þór Steinarsson
Mestar framfarir : Jón Sverrisson
 
Besti leikmaður kvenna : Bergþóra Holton
Mestar framfarir : Margrét Loftsdóttir

Mynd/ Karla West: Frá vinstri, Ægir Þór Steinarsson, Margrét Loftsdóttir, Bergþóra Holton og Jón Sverrisson.

 
 


 

Fréttir
- Auglýsing -