HomeFréttirKR Íslandsmeistari í 11. flokki karla

KR Íslandsmeistari í 11. flokki karla

 
KR er Íslandsmeistari í 11. flokki karla eftir 85-73 sigur á Njarðvík/Grindavík. Með sigrinum kvittaði KR fyrir tapið gegn Njarðvík/Grindavík í bikarúrslitum fyrr á tímabilinu. Stefán Karel Torfason var valinn besti maður úrslitaleiksins í dag með 18 stig og 16 fráköst í sigurliði KR.
Njarðvík/Grindavík byrjaði betur og leiddi 20-17 að loknum fyrsta leikhluta og 40-35 í hálfleik. Leikar voru stál í stál í þriðja leikhluta en í þeim fjórða mættu KR-ingar sterkir til leiks. KR náði forystunni á lokasprettinum og voru töluvert sterkari í fjórða leikhluta sem þeir unnu 29-16 og leikinn 85-73.
 
Eins og fyrr segir var Stefán Karel Torfason valinn besti maður leiksins með 18 stig og 16 fráköst í liði KR. Martin Hermannsson var með 23 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar og Matthías Orri Sigurðarson bætti við 20 stigum, 9 fráköstum og 4 stoðsendingum. Hjá Njarðvík/Grindavík var Maciej Baginski með 27 stig og 8 fráköst og Kjartan Helgi Steinþórsson bætti við 12 stigum og 7 fráköstum.

Myndasafn úr leiknum

 
Fréttir
- Auglýsing -