Garðbæingar hafa ekki unnið KR á þessari leiktíð. Liðin mættust ekki í Lengjubikarkeppninni og ekki heldur í Poweradebikarkeppninni og því aðeins um tvo deildarleiki á Íslandsmótinu að ræða millum liðanna áður en í úrslitaseríuna er komið. KR vann báða deildarleiki liðanna, fyrst með 18 stiga mun og seinni leikinn með 19 stiga mun. Í báðum leikjunum hefur Pavel Ermolinskij átt glimrandi frammistöðu. Að sama skapi hefur það verið Justin Shouse sem mest hefur látið að sér kveða í liði Stjörnunnar gegn KR.
7. október 2010
KR 108-90 Stjarnan (18 stiga sigur KR)
Framlengdur leikur þar sem KR vann framlenginguna 22-4. Fyrsti mótsleikur liðanna í deildinni.
Brynjar Þór Björnsson gerði 23 stig fyrir KR en Pavel Ermolinskij var með myndarlega þrennu, 22 stig, 14 fráköst og 11 stoðsendingar og alls 35 í framlag.
Hjá Stjörnunni var Justin Shouse með 21 stig og þeir Fannar Freyr og Kjartan Atli bættu báðir við 17 stigum.
6. janúar 2011
Stjarnan 76 – 95 KR (19 stiga sigur)
Enn voru KR-ingar mun sprækari á lokasprettinum og unnu fjórða leikhluta í þessum leik 22-10. Nú var Pavel Ermolinskij stigahæstur með 24 stig og 12 fráköst og 34 í framlag. Í tveimur deildarleikjum gegn Garðbæingum hefur Pavel því verið með samtals 69 í framlag.
Hjá Stjörnunni var Renato Lindmets kominn í hópinn og skoraði 16 stig í leiknum en Justin Shouse var aftur stigahæstur og nú með 19 stig.
Liðin mættust ekki í Poweradebikarkeppninni
Liðin mættust ekki í Lengjubikarkeppninni
Mynd/ Pavel hefur verið Garðbæingum illur viðureignar í vetur.




