KR hefur tekið 1-0 forystu gegn Stjörnunni í úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Lokatölur í kvöld voru 108-78 KR í vil sem tóku Garðbæinga í kennslustund á stóra sviðinu. Þetta gerðu KR-ingar án Fannars Ólafssonar sem var í búning í kvöld en lék ekki með sökum meiðsla á kálfa.
Brynjar Þór Björnsson var að öðrum ólöstuðum besti maður KR í leiknum með 28 stig og Marcus Walker bætti við 23 stigum. Hjá Stjörnunni var Renato Lindmets með 18 stig og Justin Shouse 19.
Næsti leikur liðanna er í Ásgarði á fimmtudagskvöld.
Nánar síðar…
Mynd/ [email protected] – Sjálfstraustið drýpur af KR-ingum um þessar mundir.




