Fyrri úrslitahelgi yngri flokka var æsispennandi en hún fór fram í Laugardalshöll um síðustu helgi. Í gærkvöldi stökk út á alnetið sigurkarfa Kára Jónssonar í viðureign Hauka og Stjörnunnar í 9. flokki karla. Hér á eftir fer sigurkarfa Telmu Lindar Ásgeirsdóttur leikmanns Keflavíkur í unglingaflokki kvenna.
Fjölnir TV sýndi alla leikina á fyrri úrslitahelginni í beinni netútsendingu og hafa verið að leka stórgóðum myndbrotum á netið. Telma tryggði Keflavík sigurinn þegar 0,18 sekúndur voru til leiksloka í unglingaflokki kvenna en sigur Keflavíkur í leiknum markaði jafnframt fyrsta ósigur Snæfellskvenna í vetur en Hólmarar urðu bikarmeistarar eftir sigur á Keflavík fyrr á þessu ári.
Mynd/ [email protected] – Telma er t.v. á myndinni.




