Aðfararnótt þriðjudags máttu Boston Celtics sætta sig við ósigur gegn Washington Wizards í framlengdum leik. Von Wafer leikmaður Boston átti skemmtileg tilþrif í leiknum eða ,,Fail“ eins og svona uppákomur eru jafnan skírðar á enska tungu.
Von Wafer braust í gegnum vörn Wizards, tróð… eða reyndi það og hélt að troðslan hefði tekist. Eftirmálinn, honum tókst í fögnuðinum að fá dæmt skref á liðsfélaga sinn Jermaine O´Neal er þeir rákust saman þegar Wafer var í press-pósu eftir meinta troðslu.




