HomeFréttirHildur Sigurðardóttir í Hólminn

Hildur Sigurðardóttir í Hólminn

Hildur Sigurðardóttir og Jón Ólafur Jónsson skrifuðu undir samninga við Snæfell í dag og munu því leika með meistaraflokkum karla og kvenna næsta vetur.

Hildur er öllu fjölum kunn í Hólminum og er það mikill styrkur fyrir kvennaliðið að Hildur skildi ákveða að breyta til og flytja sig úr vesturbænum frá KR þar sem hún hefur dvalið síðustu tímabil, til liðs við Snæfellsstúlkur sem hafa verið á uppleið. Hildur sagði í samtali við heimasíðu Snæfells að önnur lið hefðu kannað stöðuna hjá henni og að sjálfsgöðu hefði KR falast eftir áframhaldandi kröftum hennar.

Jón Ólafur Jónsson (Nonni Mæju) undirstrikaði ánægju sína í Snæfellsliðinu með því að skrifa einnig undir í dag og getur þá síminn hætt að hringja hjá kappanum, alla vega frá íslanskum liðum. Hann sagði við heimasíðuna að nokkur íslensk lið hefðu sett sig í samband og eitt erlent lið, sem kemur ekkert á óvart miðað við þann styrk sem hann hefur innan Snæfellsliðsins. Hann svaraði þvi til að hann vildi ekkert breyta til hér heima, sagði grasið ekkert grænna hinu megin en hann lék einhverntímann áður með Stjörnunni og KR áður en hann kom heim aftur.

Það er ljóst að Snæfellingar eru á fullu að vinna í sínum leikmannamálum með þessi fyrsta skrefi í undirskriftum og spennandi tímar framundan hjá bæði kvenna og karlaliðunum sem bæði spila í Iceland express deildunum.

Frétt: Símon Hjaltalín

Mynd: Þorsteinn Eyþórsson

Fréttir
- Auglýsing -