Í fyrsta sinn í núverandi keppnisfyrirkomulagi er eitt félag handhafi allra Íslandsmeistaratitla í kvennaflokki en félagið sem um ræðir er Keflavík, Íslandsmeistarar frá meistaraflokki kvenna niður í minnibolta stúlkna, glæsilegur árangur sem hafðist nú fyrr í dag þegar Keflavík lagði Njarðvík í stúlknaflokki í úrslitaviðureign Íslandsmótsins.
Fjórum sinnum hefur það gerst að sama félag vinni alla Íslandsmeistaratitla kvenna sem eru í boði, þ.e. þegar keppt er um fleiri en einn titil
1969 og 1971 vann Þór Akureyri titilinn í meistaraflokki kvenna og 2. flokki kvenna.
1982 vann KR meistaraflokk, 2. flokk og 3. flokk og Keflavík afrekaði svo það sama 1988.
Árnagur Keflavíkurkvenna í vetur á Íslandsmótinu:
Keflavík Íslandsmeistarar í:
– Iceland Express deild kvenna eftir 3-0 sigur á Njarðvík
– Unglingaflokki kvenna eftir 72-70 sigur á Snæfell
– Stúlknaflokki eftir 64-43 sigur gegn Njarðvík
– 10. flokki kvenna eftir 71-31 sigur gegn Grindavík
– 9. flokki kvenna eftir 65-39 sigur á Njarðvík
– 8. flokki kvenna eftir sigur á fjölliðamóti
– 7. flokki kvenna eftir sigur á fjölliðamóti
– Minnibolta kvenna eftir sigur á fjölliðamóti
Magnaður árangur hjá Keflvíkingum þessa leiktíðina og var Gunnar Jóhannsson formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur að vonum kátur með árangurinn en Karfan.is náði tali af Gunnari eftir sigur stúlknaflokks í dag sem innsiglaði þennan sögulega árangur félagsins.




