HomeFréttirSnorri Örn: Mætum tilbúnir í fjórða leikinn

Snorri Örn: Mætum tilbúnir í fjórða leikinn

 
,,Við byrjuðum mjög vel en svo leyfðum við KR að ýta okkur út úr öllum aðgerðum en okkur fannst samt hallað á Stjörnuna í dómgæslunni. Ég veit ekki hvort það hafi verið umræðan eftir síðasta leik sem olli því þar sem KR-ingar töluðu um að hallað hefði á þá eftir leik tvö en okkur fannst þeir fá að ýta of mikið,“ sagði Snorri Örn Arnaldsson aðstoðarþjálfari Garðbæinga í samtali við Karfan.is eftir stórt tap Stjörnunnar í vesturbænum í kvöld. Garðbæingar eru nú með bakið upp við vegg, hafa ekki efni á fleiri feilsporum í þessari rimmu.
,,Í þriðja leikhluta þegar munurinn var orðinn 16-18 stig þá gáfust menn upp, hættu að hlaupa kerfin og gera það sem lagt var upp með fyrir leikinn og hreinlega misstu andann, við mætum tilbúnir í fjórða leikinn, það er alveg á hreinu,“ sagði Snorri en hvar þarf Stjarnan einna helst að taka til hjá sér fyrir næsta leik?
 
,,Þetta er allt í hausnum, við þurfum að vera sterkari í því sem við erum að gera og fara eftir leikplaninu alla leið. Það er ekki svigrúm fyrir neitt annað. Þetta gerðum við í öðrum leiknum og það virkaði, nú þurfum við bara að gyrða okkur í brók, koma til baka og gera hlutina eins og við viljum gera þá.“
 
 
Fréttir
- Auglýsing -