HomeFréttirOdom valinn sjötti maður ársins

Odom valinn sjötti maður ársins

Lamar Odom, leikmaður meistara L.A. Lakers, var valinn sjötti maður ársins í NBA. Odom sem er 32 ára lék alla 82 leiki Lakers í vetur og kom inn af bekknum í 47 þeirra.
Val Odoms var frekar afgerandi en hann fékk 513 stig af 585 mögulegum. Næstur honum var bakvörðurinn Jason Terry hjá Dallas með 244 stig.
 
Odom sem er fjölhæfur leikmaður kom til Lakers árið 2004 þegar Shaq var skipt burt frá félaginu til Miami.
 
Er þetta í fyrsta skipti sem leikmaður L.A. Lakers fær þessi verðlaun en fyrsta tímabilið sem þau voru veitt var 1982-83.
 
Lesa allt um valið á Lamar Odom hér.
 
Einstaklingsverðlaun NBA 2010-11:
Mestar framfarir – Kevin Love
Varnarmaður ársins – Dwight Howard
 
Mynd: Lamar Odom er tvöfaldur meistari með L.A. Lakers

Fréttir
- Auglýsing -