Leikstjórnandinn Pavel Ermolinskij hefur verið útnefndur Íþróttamaður KR en við sama tilefni var sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir útnefnd Íþróttakona KR. Þá var Pavel einnig útnefndur körfuknattleiksmaður KR og Margrét Kara Sturludóttir körfuknattleikskona KR.
Umsögn af heimasíðu KR um þau Pavel og Margréti Köru:
Körfuknattleiksdeild KR :
Pavel Ermolinski körfuknattleiksmaður KR
Pavel Ermolinski hefur sýnt það og sannað að þar er á ferðinni mikill keppnismaður sem að leggur sig allan fram fyrir félagið og landslið Íslands þar sem hann á fast sæti. Pavel hefur stýrt KR liðinu eins og herforingi og m.a. leitt liðið til sigurs í Bikarkeppni KKÍ og á nýliðnu Íslandsmóti. Pavel er gott dæmi um afreksmann sem að leggur hart að sér til að ná árangri í sinni íþrótt.
Margrét Kara körfuknattleikskona KR
Margrét Kara hefur um árabil leikið með meistaraflokki kvenna. Margrét Kara er lýsandi dæmi um afrekskonu sem að leggur gríðarlega vinnu á sig til að verða betri í sinni íþrótt. Hún hefur metnað fyrir að liðið nái sínum markmiðum og árangur meistaraflokks kvenna undanfarin ár segir allt sem segja þarf.
Mynd/ Pavel og Ragnheiður með verðlaunagripina sem Íþróttamaður og kona KR.




