HomeFréttirDallas og Atlanta taka forystuna

Dallas og Atlanta taka forystuna

 
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt og var um útisigra að ræða í báðum tilfellum þar sem Dallas Mavericks og Atlanta Hawks tóku 1-0 forystu.
LA Lakers 94 – 96 Dallas Mavericks
Lakers 0-1 Dallas
Þrátt fyrir 36 stiga leik hjá Kobe Bryant tókst Lakers ekki að landa sigri. Bryant var einnig með 5 fráköst í leiknum og næstur honum í liði Lakers voru Pau Gasol og Lamar Odom með 15 stig. Gasol var auk þess með 11 fráköst og 7 stoðsendingar og daðraði því nett við þrennuna. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki með myndarlega tvennu, 28 stig og 14 fráköst og Jason Terry kom með 15 stig af bekknum. Dallas leiddi með einu stigi þegar Lakers hugðust fara í lokasóknina, ,,hand-off“ sending hjá Pau Gasol til Kobe Bryant misheppnaðist þar sem Jason Terry komst á milli þeirra og Dallas kláraði dæmið á vítalínunni eftir að Lakers brutu á Terry.
 
Chicago Bulls 95 – 103 Atlanta Hawks
Bulls 0-1 Hawks
Derrick Rose gerði 24 stig, tók 5 fráköst og gaf 10 stoðsendingar í liði Bulls. Luol Deng bætti við 21 stigi og 6 fráköstum en það dugði ekki til að þessu sinni. Joe Johnson fann sig vel í liði Atlanta með 34 stig og setti niður alla fimm þristana sína í leiknum og Jamal Crawfod kom með 22 stig af bekknum. Í nótt þegar leiktíminn var við það að renna út haltraði Derrick Rose af velli er hann steig illa í fótinn en sagði eftir leik að hann væri í lagi en forráðamenn Bulls eru skiljanlega áhyggjufullir en Rose meiddist á ökkla í einvíginu gegn Indiana og hefur ekki náð sér 100% eftir það.
 
Mynd/ Joe Johnson var í banastuði gegn Bulls í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -