,,Okkur eins og eflaust öðrum liðum fannst það jaðra við kæruleysi að ræða ekki við Sigurð þegar í ljós kom að hann yrði samningslaus, sér í lagi þar sem við vorum ekki fullvissir um hvað tæki við hjá Fannari Ólafssyni. Það kom þó fljótlega í ljós að við myndum ekki halda viðræðum áfram við Sigurð og fyrir síðustu mánaðarmót var það orðið alveg ljóst að við í KR yrðum ekki í baráttunni um hans þjónustu,“ svaraði Hrafn Kristjánsson þegar Karfan.is náði í skottið á þjálfara Íslands- og bikarmeistara KR og innti hann eftir því hvort röndóttir væru við það að landa Sigurði Gunnari Þorsteinssyni í miðherjastöðuna. Keflavík hefur þegar gefið út að Sigurður verði ekki með félaginu á næstu leiktíð.
,,Við ákváðum að ræða við Sigurð þegar ljóst var að hann yrði á lausu og vitaskuld er öllum liðum akkur í því að hafa svona sterkan leikmann innan sinna raða. Við í KR vinnum þó innan ákveðins ramma þegar kemur að leikmannamálum sem við erum ekki tilbúnir að fara út fyrir. Við teljum okkur geta boðið upp á marga hluti, umgjörð og aðstöðu sem eftirsóknarvert er að vinna í og viljum að það sé það sem ræður úrslitum þegar við ræðum við leikmenn. Okkar stefna hefur alltaf verið frá lokum tímabils að halda liðinu eins óbreyttu og við mögulega getum og það á sannanlega við um okkar stóru leikmenn þá Fannar Ólafsson, Finn Magnússon, Jón Orra Kristjánsson, Hreggvið Magnússon og Ágúst Angantýsson. Við teljum þá gefa okkur styrk og baráttuanda sem fá lið búa yfir,“ sagði Hrafn en hvernig standa málin með miðherjann Fannar Ólafsson, eru skórnir á leið á hilluna?
,,Við ætlum okkur að ræða við Fannar og leggjast yfir hans mál, það er okkar kostur númer eitt og hefur alltaf verið. Við teljum okkur "fúnkera" best með tvíhöfðann Fannar og Jón Orra í miðherjastöðunni og gerum ráð fyrir því að fá að njóta hans á ný næsta tímabil. Auk þess þætti mér það ámælisvert af Fannari, gæfi hann ekki ófáum aðdáendum sínum á útivöllum deildarinnar drjúgt tækifæri til að kveðja sig almennilega,“ svaraði Hrafn og þá beinast spjótin væntanlega að Grindvíkingum eða út fyrir landsteinana í málefnum Sigurðar Gunnars sem hefur áður gefið það út að hann vilji reyna fyrir sér á öðrum og stærri vettvangi.




