HomeFréttirMiami komið í úrslit austurstrandarinnar

Miami komið í úrslit austurstrandarinnar

 
Miami Heat er komið í úrslit austurstrandarinnar í NBA deildinni eftir sigur á Boston Celtics í kvöld. Þessi fimmti og síðasti leikur liðanna fór 97-87 Miami í vil sem vann því seríuna 4-1 og mætir Chicago Bulls eða Atlanta Hawks í úrslitum um austurstrandartitilinn.
Dwyane Wade fór mikinn í leiknum fyrir Heat með 34 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar og LeBron James bætti við 33 stigum, 7 fráköstum og 4 stoðsendingum. Hjá Celtics var Ray Allen með 18 stig og þar af 15 úr þriggja stiga skotum. Kevin Garnett var næstur í röðinni með 15 stig og 11 fráköst.
 
Þegar þetta er ritað er fimmti leikur Memphis Grizzlies nýhafinn þar sem Grizzlies leiða 8-4 á upphafsmínútunum.
 
Fréttir
- Auglýsing -