HomeFréttirOklahoma skellti Memphis og leiðir 3-2

Oklahoma skellti Memphis og leiðir 3-2

 
Oklahoma City Thunder tók í nótt 3-2 forystu gegn Memphis Grizzlies í undanúrslitum vesturstrandarinnar í NBA deildinni. Nokkuð öruggur sigur hér á ferðinni hjá Thunder þar sem lokatölur voru 99-72.
Kevin Durant var stigahæstur hjá Oklahoma í nótt með 19 stig og 7 fráköst og Daequan Cook kom með 18 stig af bekknum. Marc Gasol var stigahæstur hjá Grizzlies með 15 stig og 5 fráköst og Zach Randolph hefur oft haft sig meira í frammi með 9 stig og 7 fráköst.
 
Sjötti leikur liðanna fer fram á heimavelli Grizzlies aðfararnótt laugardagsins.
 
Mynd/ Durant var með 19 stig þegar Thunder tók 3-2 forystu gegn Grizzlies í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -