Kristrún Sigurjónsdóttir er gengin til liðs við Val og hefur skrifað undir tveggja ára samning. Frá þessu er greint á heimasíðu Vals. Kristrún kemur frá Hamri og er hún þriðji leikmaðurinn sem kemur á Hlíðarenda frá Hamri þetta vorið. En hinar tvær eru Guðbjörg Sverrisdóttir og Þórunn Bjarnadóttir. Einnig kom Ágúst Björgvinsson, þjálfari Valskvenna, frá Hamri fyrir tímabilið.
Kristrún verður 26 ára á þessu ári og er þetta fjórða félagið sem hún leikur með á Íslandsmótinu en hún var áður í ÍR, Haukum og Hamri.
Mynd: Kristrún leikur með Val næstu tvö keppnistímabil – valur.is




