Ljóst er að Phil Jackson hættur með L.A. Lakers og því er félagið farið á fullt að finna eftirmann hans. Fjölmilar eru strax komnir með nokkur nöfn og m.a. þeirra eru NBA-þjálfararnir Mike Dunleavy og Rick Adelman.
Ásamt Dunleavy og Adelman er Brian Shaw, aðstoðarþjálfari Phil Jackson, spenntur fyrir starfinu og er hann talinn líklegastur af þeim sem eru hjá félaginu til að taka við af Jackson. Kobe Bryant hefur lýst yfir stuðningi við Brian Shaw en talið er að hann myndi einnig styðja ráðningu Rick Adelman.
Ljóst er að forráðamenn Lakers eiga eftir að eiga fjörugt sumar framundan en ásamt því að ráða nýjan þjálfara þarf að taka vel til í leikmannahópi félagsins.
Mynd: Mike Dunleavy er einn af þeim sem eru á lista hjá Lakers. Hann þjálfaði lið Clippers á sínum tíma og þekkir því vel til í borginni.




