Haukar og Fjölnir mættust í gærkvöld í Lengjubikarnum og í þriðja sinn á skömmum tíma. Fyrsti leikur þessara liða var í Dalhúsum í Lengjubikarnum líkt og í kvöld og liðin mætust einnig í Iceland Express-deildinni á Ásvöllum fyrir skömmu. Báða þessa leiki unnu Haukar og báðir voru þeir spennandi fram til loka. Því var spurning hvor Fjölnismenn myndu svara fyrir sig að þessu sinni.
Gestirnir byrjuðu af krafti og voru að fá hraðaupplaupsstig og voru að hitta vel í teignum að auki. Nathan "Skywalker" Walkup átti eina svaðalega troðslu í einu hraðaupphlaupinu þar sem hann kom á ferðinni frá miðju og tróð með látum yfir Haukaliðið.
Það virtist hafa vakið Haukana því fram að því voru þeir seinir aftur lengi að finna hvar boltinn var og Fjölnismenn að skora auðveldar körfur í bakið á þeim.
Í stöðunni 21:18 í lok fyrsta leikhluta tóku Haukar góða rispu og breyttu stöðunni í 45:27 sér í vil.
Það er skemmst frá því að segja að efir það létu Haukar aldrei forystuna af hendi og voru með um 10 til 15 stiga forysu lengst af í leiknum. Sigur Hauka var svo afgerandi undir lokin og í raun var allt annað Haukalið sem að sást til í þessum leik en hefur sýnt sig í undanförnum leikjum. Lokatölur 90-68.
Hjá Haukum var sigaskorið dreift á milli leikmanna og margir sem lögðu hönd á plóginn í vörn og sókn sem skóp sigurinn þeirra rauðu í kvöld. Christopher Smith var mikilvægur í vörn heimamanna með 7 varin skot og 9 varnarfráköst (14 alls) og í sókninni setti hann niður 19 stig. Jovanni Schuler var með 20 stig og 12 fráköst.
Hjá Fjölni var Calvin O’Neal stigahæstur með 19 stig og Nathan Walkup var með 13 stig og 12 fráköst.
Molar úr leiknum
– Brunavarnarkerfið á Ásvöllum fór í gang í 2. leikhluta og tók nokkrar mínútur að slökkva á því.
– Haukar unnu alla leikhlutana ( 3, 9, 3, 7).
– Jovanni Shuler, Örn Sig og Chrisopher Smith tóku samtals 35 fráköst og fjórir leikmenn voru með 10 stig eða meira.
– Liðin nýttu aðeins 4/18 í þriggja (Haukar) og 5/19 (Fjölnir)
– Haukar leika næst heima fimmtudaginn 24. nóv. gegn Tindastól og Fjölnir heldur til Þorlákshafnar á föstudeginum.
– Haukar skoruðu mes 20 stig í röð og Fjölnir 7.
Mynd: Chris Smith var drjúgur fyrir Hauka í leiknum – [email protected]




