Karfan.is ræddi við Arnar Guðjónsson eftir leik Aabyhöj og Bakken Bears í dönsku úrvalsdeildinni síðastliðið fimmtudagskvöld. Arnar var að vonum svekktur eftir tapið en er nokkuð sáttur með leikinn engu að síður.
Tap með 7 á móti sterku liði Bakken Bears, sáttur með frammistöðu liðsins?
Þetta er ekki ákjósanlegt en þetta er í lagi. Við töpum á móti næstbesta liðinu í Danmörku. Við höldum okkur inni í leiknum allan tímann, við töpum boltanum aðeins of mikið og gefum upp of mörg sóknarfráköst. Annars er ég nokkuð sáttur, ég er ekki ósattur allavega.
Hvert var planið fyrir leikinn
Hægja tempóið og stoppa hraðaupphlaupin, við gerðum það.
Margir tapaðir boltar, pressa Bakken að fara illa með ykkur?
Bakken setur mikla pressu á þig, við verðum bara að venjast því. Þetta er besta vörnin á landinu. Við verðum bara að ná að halda haus aðeins betur. Við verðum betri á móti þeim á fimmtudaginn í næstu viku.
Aabyhöj eiga erfiða viku framundan en í dag taka þeir á móti Svendborg en þeir eru taplausir í vetur. Á þriðjudaginn er síðan bikarleikur á móti SISU á útivelli og loks á fimmtudaginn eigast aftur við nágrannarnir Bakken Bears og Aabyhöj.
Siguður Einarsson og félagar hans í Horsens IC eiga útileik á móti Falcon á laugardaginn en Falcon liggja á botni deildarinnar með 2 sigra en Horsens IC eru í 8 sæti með 3 sigra. Værlöse lið Axels Kárasonar mætir SISU á sunndaginn.




