HomeFréttirJón Arnór með 20 stig í Íslendingaslagnum

Jón Arnór með 20 stig í Íslendingaslagnum

Það var CAI Zaragoza sem vann fyrsta Íslendingaslaginn sem fram hefur farið í ACB deildinni á Spáni. Jón Arnór Stefánsson og félagar í Zaragoza unnu góðan 74-81 útisigur á Hauki Helga Pálssyni og félögum í Manresa.
Jón Arnór skoraði 20 stig í leiknum á tæpum 23 mínútum, hann var í byrjunarliði Zaragoza í dag og setti niður 4 af 5 þristum sínum í leiknum. Þá var hann einnig með tvö fráköst og eina stoðsendingu.
Haukur Helgi gerði sex stig í liði Manresa á tæpum 9 mínútum. Haukur var einnig í byrjunarliði Manresa í dag og komu öll sex stigin í tveimur þristum, 100% nýting hjá kappanum utan við línuna.
 
Með sigrinum fór Zaragoza í 10. sæti deildarinnar (4 sigrar/4töp) en Manresa er í 8. sæti með jafn mörg stig og Zaragosa, alls 3 lið eru í 8.-10. sæti og er Fuenlabrada einnig með 8 stig eftir 8 leiki.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -