Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld þar sem Keflavík vann sinn áttunda deildarleik í röð, Valur komst aftur á beinu brautina og Haukar unnu sinn fjórða leik í röð.
Úrslit kvöldsins:
Valur 89-64 Fjölnir
Guðbjörg Sverrisdóttir gerði 20 stig, tók 6 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í liði Vals og Melissa Leichlitner bætti við 19 stigum, 5 fráköstum og 7 stoðsendingum. Hjá Fjölni voru þær Brittney Jones og Birna Eiríksdóttir báðar með 20 stig og Jones var auk þess með 9 fráköst.
Haukar 80-55 Snæfell
Kieraah Marlow gerði 21 stig og tók 17 fráköst hjá Snæfell og Hildur Björg Kjartansdóttir bætti við 17 stigum og 11 fráköstum. Jence Ann Rhoads var með 20 stig og 10 stoðsendingar í liði Hauka og Íris Sverrisdóttir bætti við 19 stigum og 9 fráköstum.
Hamar 54-65 Keflavík
Samantha Murphy gerði 26 stig í liði Hamars og tók 6 fráköst. Marín Laufey Davíðsdóttir bætti svo við 12 stigum og 7 fráköstum. Birna Valgarðsdóttir var atkvæðamest í liði Keflavíkur með 25 stig, 13 fráköst og 5 stolna bolta. Sara Rún Hinriksdóttir og Sandra Lind Þrastardóttir bættu svo báðar við 7 stigum og Jaleesa Butler hafði hægt um sig gegn fyrrum liðsfélögum í Hamri með 6 stig en reif þó niður 14 fráköst.
Staðan í deildinni:
Deildarkeppni
| Nr. | Lið | L | U | T | S | Stig/Fen | Sti m/Fen m | Heima s/t | Úti s/t | Stig heima s/f | Stig úti s/f | Síðustu 5 | Síð 10 | Form liðs | Heima í röð | Úti í röð | JL |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ![]() |
Keflavík | 9 | 8 | 1 | 16 | 768/636 | 85.3/70.7 | 4/0 | 4/1 | 93.5/72.5 | 78.8/69.2 | 5/0 | 8/1 | 8 | 4 | 4 | 0/0 |
2. ![]() |
Njarðvík | 9 | 6 | 3 | 12 | 784/722 | 87.1/80.2 | 2/2 | 4/1 | 86.0/83.5 | 88.0/77.6 | 4/1 | 6/3 | 1 | -1 | 2 | 0/0 |
3. ![]() |
KR | 8 | 5 | 3 | 10 | 600/578 | 75.0/72.3 | 3/2 | 2/1 | 74.8/71.8 | 75.3/73.0 | 2/3 | 5/3 | -3 | -2 | -1 | 1/0 |
4. ![]() |
Haukar | 9 | 5 | 4 | 10 | 666/650 | 74.0/72.2 | 2/3 | 3/1 | 72.0/73.8 | 76.5/70.3 | 4/1 | 5/4 | 4 | 2 | 3 | 0/2 |
5. ![]() |
Snæfell | 9 | 4 | 5 | 8 | 601/631 |
Fréttir |





