HomeFréttirÚrslit kvöldsins: Grindavík rassskellti KR í DHL-Höllinni!

Úrslit kvöldsins: Grindavík rassskellti KR í DHL-Höllinni!

Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla og einn í 1. deild karla í kvöld þar sem Höttur hafði það náðugt gegn gestum sínum ÍG. Grindavík hélt sigurgöngunni áfram og skellti KR í DHL-Höllinni, 59-85, hreint ótrúlegar lokatölur.
Úrslit kvöldsins í Iceland Express deild karla:
 
KR 59-85 Grindavík
J´Nathan Bullock gerði 25 stig og tók 9 fráköst í liði Grindavíkur og Giordan Watson bætti við 18 stigum og 5 stoðsendingum. Hjá andlausu liði KR var Finnur Magnússon í sérflokki með 19 stig og 11 fráköst, aðrir reyndust fjarverandi.
 
Valur 86-92 ÍR
Jimmy Bartolotta og Robert Jarvis gerðu báðir 24 stig í liði ÍR og Jarvis var auk þess með 9 fráköst. Nemanja Sovic lét ekki sitt eftir liggja með 21 stig og 4 fráköst. Hjá Val var Garrison Johnson með 23 stig og 9 fráköst og þeir Darnell Hugee og Igor Tratnik gerðu báðir 21 stig.
 
Haukar 74-80 Tindastóll
Maurice Miller gerði 26 stig og tók 11 fráköst í liði Tindastóls og félagi hans Trey Hampton gerði 25 stig og tók 8 fráköst. Hjá Haukum var Jovanni Shuler með 28 stig og 7 fráköst og þeir Haukur Óskarsson og Emil Barja bættu báðir við 11 stigum og Emil hjó nærri þrennunni með 9 fráköst og 7 stosðendingar að auki.
 
1. deild karla

Höttur 105-69 ÍG
Michael Sloan gerði 31 stig og gaf 8 stoðsendingar í liði Hattar og Trevon Bryant bætti við 21 stigi og 12 fráköstum. Haraldur Jóhannesson var með 17 stig í liði ÍG og Orri Freyr Hjaltalín gerði 15.
 
Mynd/ J´Nathan Bullock átti sterkan leik fyrir Grindavík í DHL-Höllinni í kvöld.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -