HomeFréttirBjörgvin dæmir hjá Hrannari næsta fimmtudag

Björgvin dæmir hjá Hrannari næsta fimmtudag

Körfuknattleiksdómarinn Björgvin Rúnarsson mun dæma viðureign SISU og Arras frá Frakklandi í Eurocup kvenna næstkomandi fimmtudag þegar liðin mætast í Gentöfte í Danmörku.
Hrannar Hólm stýrir liði SISU og þó gengið sé gott í Danmörku þá hefur SISU liðið enn ekki unnið leik í Eurocup. Þegar SISU og Arras mættust í fyrri leiknum í Frakklandi hafði Arras betur 70-54.
 
Meðdómarar Björgvins í leiknum koma frá Svíþjóð og Skotlandi og eftirlitsdómarinn frá Noregi.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -