Staðan í A riðli
Caja Laboral 4 sigrar 2 töp
Olympiacos 3 sigrar 3 töp
Bennet Cantu 3 sigrar 3 töp
Fenerbahce Ulker 3 sigrar 3 töp
SLUC Nancy 3 sigrar 3 töp
Gescrap BB 2 sigrar 4 töp
CSKA Moscow hefur tekið afgerandi forustu í B riðli og hafa unnið alla sína leiki nokkuð örugglega að undanskildum háspennu leik við Panathinaikos. Það er þó ljóst að liðið verður fyrir mikilli blóðtöku í desember þegar NBA leikmenn snúa aftur til starfa. Þá hverfa á braut leikmennirnir Andrei Kirilenko og Nenad Kristic en þeir eru tveir stigahæstu menn liðsins.
Staðan í B riðli
CSKA Moscow 6 sigrar 0 töp
Panathinaikos 4 sigrar 2 töp
Unicaja 3 sigrar 3 töp
Brose Baskets 2 sigrar 4 töp
KK Zagreb 2 sigrar 4 töp
Zalgiris Kaunas 1 sigur 5 töp
Maccabi Electra sem spilaði til úrslita í keppninni í fyrra heldur uppteknum hætti og hefur siglt nokkuð öruggt í gegnum c riðil. Maccabi mun þó verða fyrir blóðtöku eins og svo mörg önnur lið í þessari keppni þegar Jordan Farmar snýr aftur á sinn gamla vinnustað en hann hefur skorað tæp 15 stig og gefið rúmlega 4 stoðsendingar á leik það sem af er tímabili.
Staðan í C riðli
Maccabi Electra 5 sigrar 1 tap
Real Madrid 4 sigrar 2 töp
Anadolu Efes 3 sigrar 3 töp
Parizan Mt:s 3 sigrar 3 töp
Emporio Armani 2 sigrar 4 töp
Belgacom Spirou 1 sigur 5 töp
Barcelona hefur verið á svakalegri siglingu það sem af er vetri og hafa unnið alla sína leiki örugglega. Nú síðast tóku þeir Olimpija í bakaríið, 72-46, en varnarleikur Barcelona hefur verið með ólíkindum. Aðeins Siena hefur tekist að skora meira en 70 stig gegn Barelona og það var í 17 stiga tapleik, 92-75. Asseco Prokom hefur svo gott sem lokið keppni en þeir hafa ekki riðið feitum hesti þetta árið.
Staðan í D riðli
Barcelona Regal 6 sigrar 0 töp
Montepaschi Siean 4 sigrar 2 töp
Unics 4 sigrar 2 töp
GS Medical Park 3 sigrar 3 töp
Uninon Olimpija 1 sigur 5 töp
Asseco Prokom 0 sigrar 6 töp
Euroleague birtir á síðu sinni tölfræði yfir hæsta framlag í hverjum tölfræðiþátt fyrir sig og einnig samanlagt framlag. Ef farið er yfir lista yfir hæstu menn í samanlögðu framlagi er ljóst að breytingar verða þar á í annari umferð deildarinnar sem fer fram í mars. Fimm á topp tíu lista yfir hæsta meðal framlag á leik eru leikmenn sem munu snúa aftur til leiks í NBA deildinni nú í desember. Það eru leikmennirnir Andrei Kirilenko,Nenad Kristic, Nicolas Batum, Danilo Gallinari og Jordan Farmar. Helstu tölfræðiþætt úr Euroleague má finna hér




