ÍG er í 4. sæti 1. deildar karla og hafa verið að tefla fram kempum á borð við Guðmund Bragason og Helga Jónas Guðfinnsson svo einhverjir séu nefndir. Nú verður brátt höggvið skarð í hópinn því knattspyrnumaðurinn Orri Freyr Hjaltalín hefur samið við knattspyrnulið Þórs á Akureyri og kveður því lið ÍG um áramótin. Orri er stoðsendingahæstur í liðinu með 2,9 stoðsendingar að meðaltali í leik og spilandi þjálfarinn og eigandi ÍG, Haraldur Jón Jóhannesson, kveðst þó ánægður með að fá að njóta krafta Orra fram að jólum.
,,Þetta er búið að liggja í loftinu í svolítinn tíma og þá var talað um að hann færi norður um jólin en þetta er gríðalegur missir fyrir okkur, að missa sneggsta leikmanninn okkar, sér í lagi þar sem við erum nú flestir komnir af okkar léttasta skeiði. Orri er okkur mikilvægur bæði í sókn og vörn. En hann hefur undanfarin ár verið með okkur að fullu fyrir jól svo hefur fótboltinn byrjað og hann lítið verið með eftir jól, svo það er ekkert nýtt,“ sagði Haraldur en það er nokkuð strembin dagskrá framundan og þá er gott að hafa hlaupagikk eins og Orra innan sinna raða.
,,Hann fer ekkert norður fyrr en um jólin þannig að við fáum að njóta krafta hans í þremur leikjum í viðbót, eigum Skallana heima á föstudaginn, á sama tíma og Grindavík – Þór Þorlákshöfn í Lengjunni þannig að þjálfararnir Helgi Jónas og Jóhann verða ekki með okkur í þeim leik og því verður gott að hafa hlaupagikkinn með í þeim leik. Svo eigum við Njarðvík heima í bikarnum og Hamar úti, hörku prógramm fram undan.“
Aðspurður hvort ÍG ætlaði sér ekki að splæsa í bandarískan leikmann við svona blóðtöku svaraði Haraldur: ,,Íslenskt, já takk – er yfirlýst stefna ÍG.“
Mynd/ Hreinn Sverrisson




