Keflavík tók á móti Val í Toyota-höllinni í kvöld og sigruðu heimamenn 91-68. Þar í fremsta flokki var Jaleesa Butler sem skilaði stæðilegri tvennu þar sem hún var með 35 stig og 18 fráköst, þar að auki splæsti hún í 6 varin skot og voru mörg þeirra nokkuð skrautleg. Hjá Val var María Ben Erlingsdóttir að finna sig vel á sínum gamla heimavelli og endaði leikinn með 21 stig.
Fyrsti leikhlutinn var nokkuð kaflaskiptur þar sem liðin skiptust á að taka á skrið. Á fyrstu mínútum leiksins var nokkuð jafnræði með liðunum en þegar líða fór á leikinn fór Keflavík að finna sig í pressuvörn sinni og komust í 11-4 á svipstundu. Við það tekur Ágúst Björgvinsson þjálfari Vals leikhlé. Eitthvað hefur Ágúst náð til sinna leikmanna því vörn Vals hertist til muna og staðan var orðin 13-11 á nokkrum mínútum. Þá var komið að Fal Harðarsyni að taka leikhlé og virtist það sama koma úr því og hjá Val. Því eftir leikhléi fór Keflavík á 7-0 ,,run“ og komið níu stigum yfir. Leikhluturinn endaði svo 24-15 þar sem Butler var komin með 12 stig og Sara Rún Hinriksdóttir með 8 stig. Hjá Val var María Ben og María Björnsdóttir báðar með 4 stig.
Valur byrjar af krafti í öðrum leikhluta með Hallveigu Jónsdóttir í fararbroddi en hún skellti niður 3 þristum í jafnmörgum tilraunum á stuttum tíma og staðan orðin 31-30. Valur að spila mjög vel þarna og voru að finna opnu skotin á móti svæði Keflavíkur. En þá fór Keflavík á skrið með Butler í fararstjórasætinu og settu í lás í vörninni. Keflavík skoraði þá 13 stig á móti tveimur hjá Val og var komið í nokkuð góða stöðu þegar nokkrar mínútur voru eftir af leikhlutanum. Í hálfleik var staðan orðin 52-37 fyrir Keflavík. Butler var komin með 25 stig og virtist allt vera að detta ofan í hjá henni og Sara Rún var komin með 10 stig. Hjá Val var María Ben og María Björnsdóttir með 10 stig hvor og Hallveig með 9 stig.
Í þriðja leikhluta náði Keflavík mest 20 stiga mun 66-46, en eftir það herti Valur all svakalega vörnina sína og sóknarleikur Keflavíkur einkenndist af mistökum. Valur hins vegar náði ekki að nýta sér það hinum megin á vellinum. Það skipti ekki máli hvar Butler var að skjóta það virtist allt fara ofan í og var hún komin með 33 stig fyrir síðasta leikhlutann þar sem Keflavík leiddi 70-55. Þá var Sara Rún komin með 16 stig. María Ben var komin með 17 stig fyrir Val og María Björnsdóttir með 14 stig.
Fjórði leikhlutinn einkenndist af mikilli baráttu á báða bóga. Fyrir utan það var mjög lítið að gerast og sigur Keflavíkur aldrei í hættu. María Ben var að spila mjög vel fyrir Val í kvöld, en hún var að spila í Keflavík í fyrsta skipti síðan hún fór í nám til Bandaríkjanna fyrir nokkrum árum síðan. Eins og áður sagði þá lauk hún leiknum með 21 stig en næst henni var María Björnsdóttir með 16 stig og síðan Hallveig með 13 stig. Kristrún Sigurjónsdóttir byrjaði leikinn fyrir Val en spilaði aðeins í tvær mínútur og sást það fljótt á leik Valsmanna að það munaði um hana í sóknarleik þeirra. Hjá Keflavík var Butler óstöðvandi og endaði leikinn með 35 stig, 18 fráköst, 6 varin skot og 4 stoðsendingar og var hún með 51 í framlag. Sara Rún var með 16 stig og 8 fráköst og var að spila mjög vel í kvöld. Pálína Gunnlaugsdóttir stýrði liði Keflavíkur mjög vel og endaði með 13 stig og 9 stoðsendingar og Birna Valgarðsdóttir var með 12 stig. Þá nýtti Sandra Þrastardóttir tækifærið og gerði 4 stig og tók 8 fráköst en þar fer enn einn efnilegi leikmaðurinn úr röðum Keflavíkur.
Mynd/ www.vf.is – Jaleesa Butler sækir að vörn Valskvenna í Toyota-höllinni í kvöld.
Umfjöllun/ Rannveig Kristín Randversdóttir – [email protected]




