Björn Ingvarsson var mættur í Dalhús í gærkvöldi þar sem Haukar heimsóttu Fjölniskonur í Iceland Express deild kvenna, lokatölur 77-87 Haukum í vil. Haukar fundu þar sinn fimmta deildarsigur í röð á meðan Fjölnir mátti sætta sig við sitt sjöunda deildartap í röð.




