spot_img
HomeFréttirSveini verður ekki gerð refsing

Sveini verður ekki gerð refsing

Sveini Arnari Davíðssyni leikmanni Snæfells verður ekki gerð refsing vegna atviks sem upp kom í viðureign KFÍ og Snæfells í Domino´s deild karla þann 10. febrúar síðastliðinn. Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ tók fyrir nokkur mál í vikunni og þar kenndi ýmissa grasa.
 
Í umræddum leik KFÍ og Snæfells kærðu dómarar Svein Arnar fyrir atvikið en myndband var sett á netið þar sem sést hvar Sveinn Arnar fer með annan fótinn í höfuð Damier Pitts, leikmanns KFÍ. Hér á eftir fer hluti dómsorða sem kki.is birti í kvöld:
 
Mál nr. 22/2012-2013
Mál þetta er tekið fyrir af aga- og úrskurðanefnd á grundvelli 5. mgr. 6. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál og er niðurstaðan m.a. byggð á myndbandsupptöku af hinu kærða atviki. Í tilvísuðu reglugerðarákvæði er gerð krafa um að gögn sýni með óyggjandi hætti að brot hafi verið framið. Þrátt fyrir mjög ítarlega og ítrekaða skoðun á myndbandinu, treystir meirihluti nefndarinnar sér ekki til að fella hið meinta brot undir ákvæðið, þ.e. að sýnt hafi verið fram á með óyggjandi hætti að um brot hafi verið að ræða og verður hinn kærði því látinn njóta vafans. Þessi niðurstaða fær einnig stuðning í afstöðu beggja keppnisliða til atviksins. Þegar af þeirri ástæðu telur meirihluti aga- og úrskurð-arnefndar ekki fært að beita hinn kærða viðurlögum vegna atviksins. Sveini A. Davíðssyni, leikmanni Snæfells, verður ekki gerð refsing vegna hins kærða atviks í leik KFÍ og Snæfells í Domino´s deild karla – mfl., sem fram fór sunnu-daginn 10.02 2013.
 
Sératkvæði.
Við erum sammála meirihluta nefndarinnar hvað tilvísun í reglugerð um aga- og úrskurðarmál varðar, þ.e. að málið sé tekið fyrir á grundvelli 5. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar. Dómari leiksins kærði atvikið og kemur fram í kæru hans að um viljandi líkamsmeiðingar hafi verið að ræða og byggir það mat á skoðun atviksins á upptöku. Aga- og úrskurðarnefnd er ekki bundin af því mati dómara þegar svo háttar til sem hér, þ.e. þegar atvik fer framhjá dómara meðan á leik stendur en kært er fyrir það eftir á. Nefndin leggur því sitt mat á atvikið. Við getum ekki tekið undir mat meirihlutans að ekkert brot hafi verið framið, enda sýnir upptaka af atvikinu vel að leikmaður Snæfells rykkir fót sínum í átt að andliti leikmanns KFÍ sem liggur á gólfinu. Í því felst háskalegt athæfi en ljóst er þó að afleiðingar þess voru þó litlar sem engar. Þá er rétt að benda á að í yfirlýsingum liðanna ber nokkuð í milli um atvik málsins og að okkar mati er ekki hægt að lesa úr yfirlýsingu KFÍ viðurkenningu þess efnis að ekkert brot hafi átt sér stað en þar kemur fram að leikmaður Snæfells setji “fót í höfuð leikmanns KFÍ”. Í ljósi þess að meirihluti nefndarinnar vill sýkna leikmann Snæfells teljum við þó óþarft að kveða á um viðurlög.
 
Oddur Ólafsson leikmaður Hamars fékk einnig eins leiks bann sem og Agnar Mar Gunnarsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkurkvenna og Jónas Ólafsson leikmaður Augnabliks. Dóma aga- og úrskurðarnefndar KKÍ sem birtir voru á vefsíðu sambandsins í kvöld má nálgast hér.
  
Fylgstu með Karfan.is á Twitter 

@Karfan_is

Fréttir
- Auglýsing -