Haukar unnu öruggan 109–79 útisigur á KV í Vesturbænum í Bæjarins beztu deild karla í kvöld.
Hafnfirðingar lögðu grunninn að sigrinum með yfirburðum í fyrri hálfleik, unnu annan leikhlutann 27–5 og leiddu með 37 stigum í hálfleik, 60–23. Dominykas Milka skilaði tvöfaldri tvennu fyrir Hauka með 10 stig og 13 fráköst og Anthony Charles Bryant Jr. var stigahæstur gestanna með 22 stig, á meðan Finnur Tómasson skoraði 18 stig fyrir KV.
Karfan hitti á Dominykas Milka eftir að lokaflautið gall og fékk hans sýn á frammistöðu Hauka og toppbaráttuna í deildinni. Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.





