KV mátti þola þungt 79–109 tap á heimavelli gegn Haukum í Vesturbænum í Bæjarins beztu deild karla í kvöld.
Vesturbæingar lentu snemma undir og skoruðu aðeins fimm stig í öðrum leikhluta, en gestirnir leiddu 60–23 í hálfleik áður en KV náði að rétta sinn hlut nokkuð í seinni hálfleik. Finnur Tómasson var stigahæstur heimamanna með 18 stig, Lars Erik Bragason skoraði 16 stig og gaf 5 stoðsendingar og Óli Gunnar Gestsson náði tvöfaldri tvennu með 15 stig og 11 fráköst.
Við ræddum við Fal Harðarson, þjálfara KV, eftir að lokaflautið gall. Viðtalið við hann má finna í spilaranum hér fyrir neðan.





