HomeBónus deildinBónus deild kvennaSvissnesk landsliðskona gengur til liðs við Fjölni

Svissnesk landsliðskona gengur til liðs við Fjölni

Fjölnir hefur gengið frá samningi við svissnesku landsliðskonuna Indiru Vilolo um að leika með meistaraflokki kvenna út yfirstandandi tímabil í Bónusdeildinni.

Þrátt fyrir ungan aldur á Vilolo farsælan feril að baki í efstu deild í Sviss og er ætlað að styrkja Fjölnisliðið í baráttunni fram undan.

Meistaraflokksráð kvenna hjá Fjölni lýsir yfir mikilli ánægju með komu hennar í Grafarvoginn og bendir á að hún komi inn í hópinn með dýrmæta reynslu og mikinn metnað.

„Ég er mjög ánægð með að hafa skrifað undir hjá Fjölni og er tilbúin að leggja mig alla fram fyrir liðið,“ segir Vilolo í tilkynningu félagsins.

Fréttir
- Auglýsing -