HomeFréttirPavel fór fyrir KR og splæsti í enn eina þrennuna

Pavel fór fyrir KR og splæsti í enn eina þrennuna

KR tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Dominos deild karla í kvöld með nokkuð öruggum og þægilegum sigri á Skallagrími í DHL höllinni.  Pavel Ermolinskij var samur við sig og splæsti í þrefalda tvennu, 17 stig, 13 fráköst og 11 stoðsendingar.  Deildarmestaratitill KR tryggir þeim heimavallaréttindin í úrslitakeppninni fram að seinasta leik takist þeim að fara svo langt.  Demond Watt Jr. var stigahæstur í liði KR með 21 stig og 15 fráköst en Darri Hilmarsson átti einni mjög góðan leik fyrir KR með 16 stig.  Hjá KR var Benjamin Curtis Smith stigahæstur með 35 stig  en næstu menn voru Ármann Vilbergsson með 12 stig og Grétar ingi Erlendsson með 11 stig og 10 fráköst.  KR verðlaunaði Brynjar Þór Björnsson fyrir leikinn með blómvendi en hann afrekaði það í síðasta leik KR gegn Þór Þorlákshöfn að spila sinn 300. leik fyrir KR.  Brynjar uppskar mikinn fögnuð áhorfenda enda vinsæll í vesturbænum.  
 

Leikurinn byrjaði af krafti en Pavel var ekki lengi að finna vin sinn Watt Jr. og fleygði boltanum í átt að körfunni þar sem Watt tróð honum með svo miklum látum að laga þurfti hringinn eftir.  Þessi troðsla var því miður það eina fyrir augað á  fyrstu mínútur leiksins.  Boltinn vildi hreinlega ekki ofaní og þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður hafði Watt Jr. skorað 4 af 7 stigum leiksins, bæði úr troðslum og þar fyrir utan hafði aðeins eitt skot farið ofaní af 14 skottilraunum beggja liða.  Það lifnaði aðeins yfir á næstu tveimur mínútum þangað til Skallagrímur tók leikhlé í stöðunni 11-3.  Sóknarleikur Skallagríms var ekki að skila miklu og virtust þeir vera hálf hugmyndasnauðir, hreyfðu sig ekki mikið og voru fyrir vikið að taka erfið skot.  Þeir afrekuðu það svo að skora aðeins 5 stig í fyrsta leikhluta gegn 17 stigum KR sem gerðu 4 manna skiptingu,þegar ein mínúta var eftir af fyrsta leikhluta, sem minnti á “unglingaflokks skiptinguna”  sem mörg lið taka þegar lítið er eftir og leikurinn augljóslega unninn.  

 

KR jók forskot sitt hægt og rólega í öðrum leikhluta og það var komið upp í 14 stig þegar þrjár mínútur voru liðnar, 24-10.  Benjamin Smith var allt í öllu í sóknarleik Skallagríms og setti 6 af fyrstu 8 stigum liðsins í öðrum leikhluta.  Þegar leikhlutinn var hálfnaður hafði heldur betur lifnað yfir sóknarleik gestanna en þá stóðu tölur 29-16 og gestirnir því í fyrsta skiptið farnir að láta KR hafa eitthvað fyrir leiknum.  Skallagrímur tók svo aftur leikhlé þegar tæpar þrjár mínútur voru til hálfleiks en þá var forskot KR 18 stig, 37-19.  Þessi sóknarleikur gestanna bauð þó ekki uppá meira en það að KR hafði ennþá 18 stiga forskot þegar flautað var til hálfleiks, 44-26.  

 

Stigahæstur í hálfleik í liði KR var Darri Hilmarsson með 12 stig en næstur var Pavel Ermolinskij með 11 stig og 10 fráköst  og Watts Jr. með 8 stig. Hjá Skallagrím var Benjamin Curtis Smith stigahæstur með 13 stig en næstu menn voru Ármann Vilbergsson með 6 stig og Egill Egilsson með 5 stig.  

 

Skallagrímur var með 30% skotnýtingu úr tveggja stiga skotum og 17% nýtingu úr þriggja stiga skotum í hálfleik en það er öllum körfuboltaunnendum klárt að það vinnur enginn leik með slíka tölfræði.  

 

Það varð lítil sem engin breyting á leiknum í byrjun seinni hálfleiks, KR hélt áfram að bæta við forskotið og leikurinn spilaðist mjög hratt þar sem bæði lið voru að gera mistök.  Þegar þriðji leikhluti var rúmlega hálfnaður tók Skallagrímur leikhlé en forskot KR stóð þá í 25 stigum, 60-35.  Þriðji leikhluti spilaðist út nokkuð tilþrifalaus fyrir utan kraftmikla pick and roll troðslu frá Jóni Orra sem uppskar mikinn fögnuð hjá KR bekknum.  Þegar honum var lokið var forskot KR 19 stig, 65-46, og útlitið sem fyrr svart fyrir gestina.  

 

Skallagrím tókst að minnka forskotið örlítið í upphafi fjórða leikhluta og var munurinn kominn niður í 15 stig, 70-55, þegar þrjár mínútur voru liðnar.  Þá lifnaði yfir stuðningsmönnum KR sem hafði varla heyrst í fram að því nema þegar klappað var fyrir ungum hetjum KR í hálfleik.  Skallagrímur tók svo leikhlé þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum og munurinn ennþá í 15 stigum, 75-60.  KR sigldi svo sigrinum heim á lokamínútunum og endaði leikurinn 90-76.  

Fréttir
- Auglýsing -