HomeFréttirÞórsarar voru mun betri aðilinn í Hafnarfirði

Þórsarar voru mun betri aðilinn í Hafnarfirði

Þorlákshafnar Þórsarar áttu ekki í miklum vandræðum með Hauka þegar liðin mættust í Hafnarfirði í kvöld. Þór tók öll völd á vellinum í stöðunni 8-8 og sáu Haukamenn aldrei til sólar eftir það. 
 
Jafnt var á öllum tölum í upphafi leiks á meðan liðin voru að þreyfa fyrir sér. Þórsarar tóku yfirhöndina í leiknum um miðjan fyrsta leikhluta og leiddu það sem eftir lifði leiks. Í hálfleik var staðan 28-41 og unnu Þórsarar að lokum 66-80. Mestur varð munurinn 18 stig og með sigrinum jöfnuðu gestirnir Hauka að stigum í 5. -6. sæti en Haukar hefðu getað tryggt sér 5. sætið með sigri og haldið vonum sínum um heimavallaréttinn í úrslitakeppninni opnum.

Tölfræði leiksins

Myndasafn eftir Axel Finn

Mynd/ Mike Cook og félagar sóttu frekar auðveldan sigur í Hafnarfjörð – Axel Finnur

Fréttir
- Auglýsing -