Njarðvík sýndu strax í byrjun að þeir ætluðu að gefa allt í leikinn og að Keflavík þyrftu að hafa sig alla við ef þeir ætluðu ekki að missa af lestinni. Njarðvík spilaði af mikilli liðsheild á meðan að einstaklingsframtakið réð ríkjum hjá Keflavík. Það var liðsheildin sem var sterkari í dag, og það mikið sterkari þar sem Njarðvík vann með nokkrum yfirburður 43-61.
1. Leikhluti
Njarðvík hóf leik með stífri pressu. Jón Arnór Sverrisson með langan þrist fyrir Njarðvík til að opna leikinn og fagnar honum með skemmtilegum snúning að auki. Keflavík skoruðu sín fyrstu stig af vítalínunni en Njarðvík koma sér síðan í 7-2. Keflavík réð ekkert við Njarðvík og tóku leikhlé eftir að Njarðvík eru komnir í 12-4. Það gerði því miður lítið fyrir Keflavík þar sem að Njarðvík héldu áfram að sama krafti. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 11-23 fyrir Njarðvík.
2. Leikhluti
Það var allt í járnum í upphafi leikhlutans og lítið skorað, Keflavík með 1 stig og Njarðvík með 2 þegar leikhlutinn er hálfnaður. Mikil og sterk vörn var spiluð hjá báðum liðum og sem dæmi voru ruðningar dæmdir báðum meginn í sitthvorri sókninni. Keflavík fóru að finna sig og Arnór Ingi Ingvason hamraði niður þrist spjaldið ofan í og Keflavík endaði fyrri hálfleikinn á mjög góðum kafla. Keflavík vann leikhlutann með þremur stigum og héldu Njarðvík í aðeins 5 stigum í leikhlutanum. Njarðvík þó ennþá með góða forystu 19-28.
3. Leikhluti
Jón Arnór hélt Keflavík í góðri fjarlægð eftir að hann setti þrist og kom leiknum í 12 stiga mun 21-33. Keflavík komu með góðan kafla og var Stefán Alexander Ljubicic með glæsilegan snúning þar sem hann kláraði með undirhandarskoti ásamt því að fá vítaskot sem hann setti einnig niður. Marvin Harrý Guðmundsson setti niður þrist og staðan komin niður í 6 stig. Njarðvík svaraði hins vegar og komst aftur 10 stigum yfir 27-37. Adam Eiður Ásgeirsson fékk opið skot og lét ekki segja sér það tvisvar, setti þristinn og jók muninn í 15 stig fyrir Njarðvík en hann var búinn að vera besti maður vallarins. Staðan 29-44 að loknum þriðja leikhluta.
4. Leikhluti
Keflavík skipti yfir í svæðisvörn sem virkaði vel í fyrstu, þeir stálu boltanum og skoruðu úr hraða upphlaupi. Marvin Harrý hamraði svo niður þrist rúmum meter frá línunni. En Hermann Ingi Harðarson setti rándýran þrist fyrir Njarðvík sem kom þeim 14 stigum yfir í stöðunni 35-49 og leikurinn þar með orðinn endanlega úti fyrir Keflavík. Þeir gáfust þó ekki upp og reyndu hvað þeir gátu en Njarðvík voru einfaldlega of heitir og ef þeir hittu ekki þá tóku þeir sóknarfrákastið. Öruggur sigur hjá Njarðvík 41-61.
Leikmaður leiksins: Adam Eiður Ásgeirsson
Byrjunarlið Keflavíkur:
Brynjar Bergmann Björnsson
Arnór Ingi Ingvason
Stefán Alexander Ljubicic
Marvin Harrý Guðmundsson
Róbert Smári Jónsson
Byrjunarlið Njarðvíkur:
Gunnlaugur Sveinn Hafsteinsson
Snjólfur Marel Stefánsson
Jón Arnór Sverrisson
Adam Eiður Ásgeirsson
Sigurjón Gauti Friðriksson
Mynd/ Nökkvi – Njarðvíkingar fögnuðu vel




