Keflavík og Haukar mættust í þriðja skiptið í kvennaflokki þessa bikarhelgina og að þessu sinni í stúlknaflokki. Keflavík hafði betur í þessum leik er þær unnu 66-54 og unnu því 2-1 yfir heildina í þessum einvígum.
Haukar áttu erfitt uppdráttar gegn sterki vörn Keflavíkur og réðu þær ekkert við Bríeti Sif Hinriksdóttur sem skoraði 26 stig í leiknum ásamt því að leikmaður leiksins, Sandra Lind Þrastardóttir, var þeim mjög erfið í frákasata baráttunni ásamt því að finna liðfélaga sína mjög vel þegar þeir áttu von á opnu færi.
1. Leikhluti
Leikurinn fór rólega af stað og var jafnt með liðunum. Írena Sól Jónsdóttir fór mikinn fyrir Keflavík í byrjun. Skoraði hún fjögur stig og var að auki með stoðsendingu. Keflavík komust í 10-6 við miðbik leikhlutans, en Haukar hleyptu þeim þó ekki langt frá sér og eftir þrist frá Þóru Kristínu Jónsdóttur og víti hjá Sylvíu Rún Hálfdanardóttur var staðan 12-10 í lok leikhlutans.
2. Leikhluti
Bæði lið spiluðu mjög sterka vörn og var því lítið um skoraðar körfur. Fyrsta karfan í opnum leik kom eftir fimm mínútur, aðeins hafði verið skorað úr vítum fram að því, þegar Írena setti þrist. Liðin skiptust síðan á körfum en Keflavík var skrefi á undan og staðan 20-15 eftir að Bríet Sif Hinriksdóttir stal boltanum undir körfunni hjá sér og hljóp völlinn á enda og skoraði úr sniðskoti. Haukum gekk mjög illa að koma boltanum inn í teig þar sem Keflavík voru búnir að skella í lás í vörninni. Haukar minnkuðu munninn niður í 1 stig eftir að hafa endað fyrri hálfleikinn á 7-0 kafla, 23-22, þar sem að Sylvía skoraði 5 stig.
3. Leikhluti
Sylvía kom Haukum yfr í fyrsta skiptið í leiknum þegar hún stal boltanum og komast í hraðaupphlaup. Bríet svaraði því þó strax í næstu sókn og smellti niður þrist til að koma Keflavík aftur yfir 26-24. Liðin héldu áfram að skiptast á körfum en Keflavík með yfirhöndina. Dýrfinna Arnardóttir var með mikla baráttu og skoraði í þriðju tilraun eftir að hafa alltaf náð sóknarfrákastinu, minnkar muninn í 1 stig. Bríet svaraði hins vegar bara strax aftur eins og hún gerði fyrr í leikhlutanum og smellti þrist sem varð upphafið af 7-0 kafla hjá Keflavík til að enda leikhlutann og Keflavík því yfir 41-33.
4. Leikhluti
Bríet byrjaði fjórða leikhlutann eins og hún endaði þann þriðja, alveg sjóðandi og setti sinn þriðja þrist til að koma Keflavík 11 stigum yfir. Sylvía neitaði að gefast upp og skoraði 5 stig fyrir Hauka á skömmum tíma. Keflavík voru hins vegar að spila of vel og skoraði Bríet 5 stig fyrir Keflavík á stuttum tíma og svo gott sem kláraði leikinn. Þá kom Írena og tók sig til smellti niður síðasta kistunaglanum, 56-37. Haukar reyndu hvað þær gátu en munurinn of mikill og Keflavík að spila alltof vel þannig Keflavík fór með 66-54 sigur af hólmi.
Leikmaður leiksins: Sandra Lind Þrastardóttir
Byrjunarlið Keflavíkur:
Irena Sól Jónsdóttir
Kristrún Björgvinsdóttir
Sandra Lind Þrastardóttir
Sara Rún Hinriksdóttir
Bríet Sif Hinriksdóttir
Byrjunarlið Hauka:
Sylvía Rún Hálfdanardóttir
Rósa Björk Pétursdóttir
Dýrfinna Arnardóttir
Þóra Kristín Jónsdóttir
Inga Rún Svansdóttir
Mynd/ Nökkvi – Bikarmeistarar Keflavíkur




