Þorsteinn Már Ragnarsson leikmaður Þórs Þorlákshafnar mun að öllum líkindum ekki spila meira það sem af er þessu tímabili vegna meiðsla. Þetta kemur fram á vef Hafnarfrétta.
Þorsteinn fór í myndatöku á dögunum og í ljós kom að hann er með rifinn liðþófa í hné og fer í aðgerð í lok mars. Þorsteinn hefur ekkert spilað með Þórsliðinu undanfarið vegna þessa og munar um minna þar sem úrslitakeppnin er á næsta leiti.




