Dagskráin fyrir 4-liða úrslit kvenna er orðin ljós en Snæfell mun mæta Val og Haukar mæta Keflavík.
Snæfell vann allar fjórar viðureignir liðanna í deildarkeppninni og því á hinum stóra að taka hjá Val í því einvígi.
Haukar unnu 3 af 4 á móti Keflavík í deildinni og var það viðureign þeirra í fyrstu umferð sem Keflavík sigraði. Keflavík tapaði lokaviðureign þeirra aðeins með einu stigi og því ætti einvígi þeirra að teljast jafnara.
Snæfell – Valur
Leikur 1: Laugardagurinn 15. mars kl.15:00 – Stykkishólmur
Leikur 2: Mánudagurinn 17. mars kl.19:15 – Vodafonehöllin SÝNDUR BEINT Á STÖÐ 2 SPORT
Leikur 3: Miðvikudagurinn 19. mars kl.19:15 – Stykkishólmur
Leikur 4: Föstudagurinn 21 mars kl.18:00 – Vodafonehöllin EF ÞARF
Leikur 5: Þriðjudagurinn 25. mars kl.19:15 – Stykkishólmur EF ÞARF
Haukar – Keflavík
Leikur 1: Laugardagurinn 15. mars kl.16:00 – Schenkerhöllin
Leikur 2: Mánudagurinn 17. mars kl.19:15 – TM höllin
Leikur 3: Miðvikudagurinn 19. mars kl.19:15 – Schenkerhöllin
Leikur 4: Laugardagurinn 22. mars kl.16:15 – TM höllin EF ÞARF
Leikur 5: Þriðjudagurinn 25. mars kl.19:15 – Schenkerhöllin EF ÞARF
Ef undanúrslitin klárast í fjórum leikjum er fyrsti leikdagur úrslitanna Miðvikudaginn 26. mars
Ef undanúrslitin klárast í fimm leikjum er fyrsti leikdagur úrslitanna Laugardaginn 29. mars




